Skip to main content

HEILDARDAGSKRÁ UTMESSUNNAR 2018

UTmessan felur í sér marga viðburði og allir styðja þeir við markmið UTmessunnar sem er að sýna hve stór og fjölbreyttur tölvugeirinn á Íslandi er með það að markmiði að fjölga þeim sem velja sér tölvu- og tæknigreinar sem framtíðarstarfsvettvang. Öll helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins taka þátt í viðburðum UTmessunnar. 

FÖSTUDAGURINN 2. FEBRÚAR KL. 8:00-18:30

- ráðstefnudagur fyrir tölvu- og tæknifólk

DAGSKRÁ RÁÐSTEFNUNNAR

Ráðstefna fyrir fagfólk og aðra áhugamenn um upplýsingatækni. Á ráðstefnunni verða nokkrar þemalínur í sölum Hörpunnar.  Mikill metnaður er hjá undirbúningsnefndinni og munu margir færir erlendir og innlendir fyrirlesarar stíga á stokk á ráðstefninni. Fjöldi fyrirtækja hefur skráð sig á sýningarsvæðið í opnu rými á fyrstu hæð Hörpunnar og verður það opið ráðstefnugestum allan daginn.

LAUGARDAGURINN 3. FEBRÚAR KL. 10-17

- ókeypis upplifun fyrir alla fjölskylduna og aðra sem vilja sjá hvað er að gerast í tölvugeiranum 

DAGSKRÁ LAUGARDAGSINS 

Sýning tölvu- og tæknifyrirtækja verður opin allan daginn og kostar ekkert inn. einnig verða alls kyns getraunir og leikir í gangi. Margt fleira skemmtilegt verður í boði til að svipta af hulunni af dulúð tölvuheimsins, bæði fyrir börn og fullorðna. Sýningin er ætluð almenningi, konum og körlum, stelpum og strákum, ungum sem öldnum.

 

ÝTTU HÉR TIL AÐ SJÁ MYND AF SVÆÐINU