Skip to main content

Dagskrá UTmessunnar 2023

UTmessan felur í sér marga viðburði og allir styðja þeir við markmið UTmessunnar sem er að sýna hve stór og fjölbreyttur tölvugeirinn á Íslandi er og reyna að fjölga þeim sem velja sér tölvu- og tæknigreinar sem framtíðarstarfsvettvang. Öll helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins taka þátt í viðburðum UTmessunnar.  Þannig hefst UTmessan á UTmessu vikunni, síðan er ráðstefnudagur og að lokum tæknidagur UTmessunnar. 

UTmessu vikan
UTmessu vikan
(PRE EVENTS)

30. janúar - 2. febrúar

Fróðlegir og skemmtilegir viðburðir í tengslum við UTmessuna
Ráðstefna og sýning
Ráðstefna
(Conference)

3. febrúar  kl. 8:30 - 18:30

Ráðstefna og sýning fyrir fagfólk í upplýsingatækni
Tæknidagur
Tæknidagur
(EXPO)

4. febrúar  kl. 10:00 - 17:00

Glæsileg sýning tæknifyrirtækja á sýningarsvæðinu

UTMESSU VIKAN 30. janúar - 2. FEBRÚAR - ÚT UM ALLAN BÆ (OFF-VENUE)

Opið hús hjá skólum og fyrirtækjum tengdum UTmessunni. Fróðleikur fyrir almenning og frítt inn en athugið að það þarf að skrá sig fyrirfram á suma viðburðina.

Í vikunni fyrir UTmessuna bjóða tæknifyrirtækin upp á viðburði eða opið hús til að sýna hvað þau hafa uppá að bjóða.  Fjölbreytt dagskrá fyrir mismunandi aldurshópa.

Ráðstefnudagur - FÖSTUDAGinn 3. FEBRÚAR KL. 8:30 - 18:30

Ráðstefnudagur fyrir tölvu- og tæknifólk. Upplýsingatækniverðlaun Ský verða veitt í lok dags.

Ráðstefna fyrir fagfólk og aðra áhugamenn um upplýsingatækni. Á ráðstefnunni verða fjölmargar þemalínur í sölum Hörpu.  Mikill metnaður er hjá undirbúningsnefndinni og erlendir og innlendir fyrirlesarar stíga á stokk á ráðstefnunni. Fjöldi fyrirtækja hefur skráð sig á sýningarsvæðið  og verður það opið ráðstefnugestum allan daginn. Upplýsingatækniverðlaun Ský verða afhent í lok dags.
 

Tæknidagur - LAUGARDAGINN 4. FEBRÚAR KL. 10:00 - 17:00

Ókeypis upplifun fyrir alla fjölskylduna og aðra sem vilja sjá hvað er að gerast í tölvugeiranum 

Sýning tölvu- og tæknifyrirtækja verður opin allan daginn og kostar ekkert inn. Alls kyns getraunir og leikir í gangi og margt fleira skemmtilegt verður í boði til að svipta af hulunni af dulúð tölvuheimsins, bæði fyrir börn og fullorðna. Sýningin er ætluð almenningi, ungum sem öldnum. Eins og áður fer Hönnunarkeppni HÍ fram sem hluti af tæknidegi UTmessunnar.