AI + EQ: Breytt hlutverk verkefnastjórans með tilkomu gervigreindar
Stafræn sjálfvirkni | Digitalization Eldborg 02.02.2024 14:05
Verkefnastjórar verða að taka gervigreind sem öflugan bandamann, þróa gagnalæsi, einbeita sér að stefnumótandi þáttum og halda áfram að laga sig að þessu kraftmikla landslagi til að dafna í nútíma verkefnastjórnunarumhverfi. Með réttri notkun á gervigreind verða hefðbundnir þættir í undirbúningi og framkvæmd verkefna á borð við forgangsröðun, áhættugreiningu, kostnaðargreiningu og mannaflaspá leikur einn. Gervigreindin kemur þó ekki í staðinn fyrir tilfinningagreind og í þessu erindi verður farið yfir samspil þessara tveggja mikilvægu þátta í starfi verkefnastjórans.
Hugrún Ösp Reynisdóttir og Sigríður Sigurðardóttir, Veitur
Hugrún er leiðtogi verkefnastofu Veita. Hún er með APME nám að baki í verkefnastjórun og situr í stjórn Verkefnastjórnunarfélags Íslands. Hugrún hefur áralanga reynslu af stýringu verkefna og brennur fyrir hverskonar umbótum og hvernig nýta megi tæknina á sjálfbæran og skynsaman hátt.
Sigríður er leiðtogi Snjallvæðingar og stafrænnar þróunar hjá Veitum. Hún er með doktorsgráðu í iðnaðarverkfræði þar sem hún sérhæfði sig í líkanagerð og hermun. Hún brennur fyrir það að nýta gögn til gagns og almennt að nýta tæknina til þess að gera betur í dag en í gær