Skip to main content

Tæknidagur - laugardaginn 6. febrúar 2021 kl. 12 - 17

Skemmtileg dagskrá á vegum skóla á tæknidegi UTmessunnar. Öll dagskráin fer fram á netinu og tenglar á viðburði eru hér fyrir neðan.

Ókeypis upplifun fyrir alla fjölskylduna og vonum við að allir njóti dagsins.  Hægt er að spila suma viðburði hvenær sem er þó auglýstur tími sé liðinn.

Háskóli Íslands
kl. 12:00 - 14:00
Háskóli Íslands - Streymi

Háskóli Íslands á UTmessunni

Skyggnst á bak við tjöldin í Háskóla Íslands. Sagt verður frá fjölbreyttum rannsóknum sem unnið er að í háskólanum og við fáum að skoða ýmis tól og tæki sem notuð eru til rannsókna. Meðal þess sem skoðað verður er sérstakur hljóðklefi þar sem fram fara rannsóknir á hljóði, kíkt verður í heimsókn í Örtæknikjarna HÍ þar sem unnið er að rannsóknum í eðlisfræði, rætt við nemendur í tæknifræði og þá verður Vísindasmiðja Háskóla Íslands í Háskólabíói heimsótt þar sem vísindamiðlarar smiðjunnar segja okkur frá starfsemi hennar og gera skemmtilegar tilraunir.

Skoða

Minecraft Server SKEMA
kl. 12:00 - 16:00
Skema í HR

Opinn Minecraft Server SKEMA

Sköpum saman á Minecraft-netþjóni Skema í HR. minecraft.skema.

Leiðbeiningar - Tengjast Minecraft-netþjóni:
  1. Kaupa aðgang og hlaða niður Minecraft Java Edition á vefsíðu Minecraft
  2. Opna Minecraft
  3. Velja „Multiplayer/Netspilun”
  4. Velja „Direct connection/Beintenging”
  5. Skrifa „minecraft.skema.is”
  6. Velja „Join Server/Tengjast þjóni”
Fylgstu með lifandi streymi á Facebook eða á minecraft.skema.is

Skoða

Tían - Netöryggiskeppni Íslands
kl. 13:00 - 14:00
Tían - Netöryggiskeppni Íslands

Bankarán í beinni

Ertu forvitin(n) um hvernig raunverulegir öryggisgallar líta út? Langar þig að verða vitni að bankaráni?
Sparion er nýr banki sem ætlar að herja inn á íslenskan markað á næstunni. Bankinn hefur látið útbúa netbanka, en netbankinn var hannaður og smíðaður af hugbúnaðarfyrirtæki sem er ekki þekkt fyrir að setja öryggi í fyrsta sæti.
Starfsmenn Syndis ætla að gera úttekt á netbanka Sparion í beinni útsendingu og kynna um leið nokkra þekkta öryggisgalla sem hafa verið misnotaðir í raunverulegum netárásum.
Skráðu þig á viðburðinn á Facebook svo þú missir örugglega ekki af ráninu!

Skoða

Tæknistelpur
kl. 12:00 - 16:00
Háskólinn í Reykjavík

Tæknistelpur

Stelpur fá að kynnast tölvuleikjaforritun

Skoða

Menntaskólinn á Ásbrú - Spjallherbergi
kl. 13:00 - 14:30
Menntaskólinn á Ásbrú

Spjallherbergið

Opið spjallherbergi þar sem gestir og gangandi geta litið inn á Microsoft Teams og rætt við kennara, starfsfólk og nemendur MÁ til viðbótar við allt hitt sem opna húsið okkar hefur upp á að bjóða.

Skoða

Tækniskólinn
kl. 13:30 - 14:30
Tækniskólinn

Stafræn hönnun

Bein útsending hjá nemendum í stafrænni hönnun.

Skoða

Ratleikur
kl. 12:00 - 17:00
Tækniskólinn

Ratleikur

Ratleikur (3D) um Framtíðarstofu Tækniskólans

Skoða

Skema í HR
kl. 12:00 - 16:00
Skema í HR

Forritunarkennsla í Scratch

Tölvuleikjagerð, búðu til þína eigin tölvuleiki í Scratch og lærðu grunnforritunina, þjálfarar Skema veita þér þau verkfæri sem til þarf.

Skoða

Bergur Ebbi og talgervillinn
kl. 12:00 - 16:00
Háskólinn í Reykjavík

Bergur Ebbi og talgervillinn

Mál- og raddtæknistofa Gervigreindarseturs HR - Bergur Ebbi og talgervillinn, er hægt að kenna þeim uppistand?

Skoða

Forritandi foreldrar
kl. 12:00 - 16:00
Háskólinn í Reykjavík

Forritandi foreldrar

Út á hvað gengur þetta allt saman, fáðu kynningu á helstu tölvuleikjum krakkanna og Skema í leiðinni.

Skoða

Menntaskólinn á Ásbrú - Stafrænt opið hús
kl. 12:00 - 17:00
Menntaskólinn á Ásbrú

Stafrænt opið hús

Þar sem ekki er fært að hittast í raunheimum til ræða tækni, tölvuleiki og framtíðina er gestum boðið á opið hús á vefnum. Kíktu í heimsókn.

Skoða

Mál- og raddtæknistofa Gervigreindarseturs HR
kl. 12:00 - 16:00
Háskólinn í Reykjavík

Mál- og raddtæknistofa Gervigreindarseturs HR

Leggðu þitt af mörkum við að kenna tölvum og tækjum íslensku á samromur.is

Skoða

Tiro
Tiro

Tiro er nýsköpunarfyrirtæki sem rekur upphaf sitt til rannsókna á sviði máltækni við Háskólann í Reykjavík og hóf starfsemi sína með tilstuðlan styrks frá Tækniþróunarsjóð til að þróa talgreini fyrir „dikteringar“ í myndgreiningu röntgenlækna árið 2014. Síðan þá hefur fyrirtækið unnið markvist að þróun talgervla til almennrar og sérhæfðrar notkunar á íslensku. Hér er hægt að sjá hvernig þetta allt saman virkar.

Skoða

Krossgáta UTmessunnar
Tæknikrossgáta UTmessunnar

Leystu krossgátuna og þú gætir komist í pottinn.


Þú getur líka spreytt þig á orðaleitinni eða UTmessu púslinu.


Skoða

UThladvarp
UThlaðvarp Ský

Í UT hlaðvarpi Ský er spjallað við fólk sem veit ýmislegt þegar kemur að upplýsingum og/eða tækni.

Skoða